Ótrúlegasti draumur....

Kæru bloggvinir,

Ég er eins og unnusti minn...blogga ekki reglulega en blogga þó smávegis ;)

Í nótt dreymdi mig hinn ótrúlegasta draum.

Mig dreymdi að tengdaforeldrar mínir (Rúna og Þorvaldur) voru að skiptast á hlutum. Rúna var ákaflega frek og greyið Þorvaldur gaf allt eftir. Þau áttu einhvern kofa sem honum Þorvaldi þótti afar vænt um og eyddi miklum tíma í (átti pottþétt að vera skúrinn). En hún Rúna vildi aldeilis fá kofann með sér í nýja kotið. Þorvaldur greyið gaf eftir og lét hana fá kofann!Hann meira að segja útvegaði kerru til að flytja hann.Þegar allt var farið stóð Þorvaldur þarna eftir á nærbuxunum einum fata, á meðan Rúna hló að honum og gúffaði í sig heimsins girnilegasta ís!

Við Guffi minn erum búin að hlæja okkur máttlaus yfir þessum draum og ákváðum að deila honum hérna í blogg heiminum. :)

Með kærum kveðjum,Ragnhildur og Guðfinnur


Afi Gylfi

Sælir kæru bloggvinir,

ég hef svosem ekkert að segja...langaði að skrifa niður textana af uppáhaldslögum hans afa míns Gylfa Magnússyni Heart

 

Þú komst í hlaðið.

 

Þú komst í hlaðið á hvítum hesti,

þú komst með vor í augum þér.

Ég söng og fagnaði góðum gesti

og gaf þér hjartað í brjósti mér.

 

Ég heyri álengdar hófadyninn,

ég horfi langt á eftir þér.

og bjart er alltaf um besta vininn

og blítt er nafn hans á vörum mér.

 

Þó liði dagar og líði nætur,

má lengi rekja gömul spor.

Þó kuldinn næði um daladætur,

þá dreymir allar um sól og vor.

 

Ísland er land þitt.

 

Ísland er land þitt og ávallt þú geymir

Ísland í huga þér hvar sem þú ferð

Ísland er land þitt sem ungann þig dreymir

Ísland í vonanna birtu þú sérð

Ísland í sumarsins algræna skrúði

Ísland með blikandi norðljósa traf

Ísland að feðranna afrekum hlúði

Ísland er fodlin sem lífið þér gaf.

 

Ísland er þjóðin sem arfinn þinn geymir 

Íslensk er tunga þín skír eins og gull

Íslensk er sú lind sem æðar þér streymir

Íslensk er vonin af bjartsýni full.

Íslensk er vornóttin albjört sem dagur

Íslensk er lundin með karlmennskuþor.

Íslensk er vísan hinn íslenski bragur.

Íslensk er trúin á frelsisins vor.

 

Ísland er land þitt því aldrei skal gleyma 

Íslandi helgar þú krafta og starf

Íslenska þjóð þér er ætlað að geyma 

Íslenska  tungu hinn dýrasta arf.

Ísland sé blessað um aldanna raðir 

Íslenska moldin er lífið þér gaf

Ísland sé falið þér eilífri faðir.

Ísland sé frjáls með sól gyllir haf.

 

img_8935.jpg

 

 

 


Yndislegustu og fallegustu systkini heimsins!

einar_1.jpg

Hérna langaði mig bara að birta myndir af Einsa og Mörtu minni heimsins bestu systkinum sem hægt er að eiga Heart

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

einar_og_marta_4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

einar_og_marta_3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

marta_10.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

einar_og_marta_1.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

einar_4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

marta_3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

marta_4.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

marta_og_hundur.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

FALLEGUSTU systkini heimsins!

 


Bumbulíus!

Góða kvöldið gott fólk.. og gleðilegt ár og takk fyrir það liðna Wink

Eins og flest ykkar vita þá erum við búin að fara í 20 vikna sónarinn og það gekk bara mjög vel Smile

En til þess að hafa eitthvað að gera á meðgöngunni og láta mér ekki leiðast þá fór ég í dag og valdi mér 3 áfanga í Háskóla Íslands sem er fallega tungumálið danskan Smile og fögin eru:

Danskt mál og málnotkun II Smile

Danska glæpasagan Wink

Dönsk hljóðfræði Cool 

og samtals eru þetta 17 einingar Smile  og er ég orðin svakalega spennt og byrja núna mánudaginn 11.janúar.

 

Ég og Elín mín fórum í dag í Tvö Líf og keyptum á útsölunni og svo fórum við að tala við námsráðgjafann og hún ráðlagði mér heldur betur og tók ég þá ákvörðun að námsleiðin mín verður danska og spænska TVÆR háskólagráður!!! Cool
já þannig að það verður nóg að gera hjá mér, þetta er hálft nám Smile

en já hérna koma skemmtilegar jólamyndir W00t

img_8496.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Heimsins besti afi (Afi Gylfi) HeartHeart

 

 

img_8581.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ormarnir okkar Heart (litlu yndislegu systkini mínHeart) og UPPÁHALDS frænkur Heart

Unnur Andrea, Hanna María, Marta María og Einar Gylfi Smile

 img_8590.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Yndislegi unnustinn minn HeartHeart með alveg hreint FRÁBÆRAN bol heheheh Grin

img_8617.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég alsæl eins og oftast á Stokkseyrinni hehehe Tounge

 

img_8598.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Pabbi minn og Einar minn Grin fótboltamennirnir á bænum Smile

Jæja þá er þetta komið gott fólk og núna ætlum við að fara að glápa á Heroes Smile

bæbæ eða hej hej,

Ragnhildur Tounge

 


Söngvaseiður (The Sound of Music)

Jæja gott fólk núna er mánuður síðan ég bloggaði síðast Smile (framför)

Núna er ég komin 16vikur4dagaSmile og er komin með smábumbu heheheheh LoL mér fannst hún svo lengi að koma en svo kom hún bara eina nóttina þegar ég var komin 14vikur4daga og þá tókum við fyrstu myndina :) img_9288_940926.jpg











 

 

 

 

 

 

 

 

 
(komin 14vikur4daga)

28. nóvember fór ég með yndislegu frænku minni henni Hönnu Maríu í Borgarleikhúsið á "Söngvaseið" og fór með frekar neikvæðu hugarfari en svo þegar leikritinu lauk þá var ég alsæl og yfir mig heilluð af börnunum (leikurunum) Blush og söng ÖLL lögin þegar ég kom heim ég gerði alveg út af við Guffa og Elínu mína Tounge t.d.  ég söng ENDALAUST

"DO RE MI"

Do er dáldið lukk og lán 

RE er rest af kökusneið

MI er mí á mikjuskán

FA er falleg gönguleið

SO er svona bros á vör

LA er næst á eftir so

TI er tígulkaka og smjör

og svo tökum við frá DO 

DO RE MI FA SO LA TI DO SO DO!

En allavega seinna í vikunni þegar við vorum að koma okkur fyrir í nýju íbúðinni þá raulaði ég þetta eins og ég hafi fengið borgað fyrir það heheheh og svo allt í einu ákvað ég "ég ætla að fara aftur á Söngvaseið" Blush og Guffi bara hló og hló Blush og viti menn..........ÉG FÓR með Mörtu Maríu, Einari Gylfa og Unni Andreu Blush og ég skemmti mér konunglega SmileBlush (og raula ennþá lögin) Blush Þetta var alveg hreint FRÁBÆRT leikrit og leikkonan sem leikur Maríu var alveg hreint ótrúleg á sviðinu Smile hún lék þetta svo svakalega vel! Mig langar rosalega að sjá leikritið "Fjölskyldan" svo dauðlangar mig á tónleikana "Baggalútur" Smile

Þetta er svosem það sem er að frétta af þessum bæ Smile

Svo förum við í 20 vikna sónarinn þegar við erum komin 19vikur6daga (30.desember) við hjúin hlökkum rosalega til Smile mig langar svo að vita kynið!!!!!!!!! En við hjúin ákvöddum að það ætlum við ekki að gera það tekur spennuna af meðgöngunni Cool þannig að við bíðum víst bara....hehe Whistling

eitt í viðbóóóóóóóót....

Í fyrradag vorum við hjúin að fara í Hagkaup og á leiðinni sé á lofti ljós og eitthvað hreyfast Gasp og ég hélt um leið að ég hafði nú séð jólasveininn LoL

en jæja gott fólk þá eru víst Aðþrengdar eiginkonur að taka við og svo drepfyndinn álfur LoL

verið þið sæl Smile

(Kveðjusöngur-Söngvaseiður)

So long, farvel, auf wiedersehen, ég kveð
með harm í hjarta hnuggin ykkur kveð Smile

jaaaa_a.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 (komin 15vikur4daga) Smile

ragga_bomm_940934.jpg

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

(önnur mynd komin 15vikur4daga) Smile

img_8467.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

(komin 16vikur4daga)  Smile


24 óléttupróf! :D

Jæja kæru bloggvinir...

Ég hef ekki skrifað síðan ég útskrifaðist úffff vonandi finnst ykkur ég ekki vera orðin ryðguð Smile hehe

Allavega eins og flest ykkar vitið þá erum við hjúin barnshafandar.  Grin(Erum núna komin 12 vikur á leið) Smile

Lífið er yndislegt þetta kríli var SVO planað og er svo rosalega velkomið Heart 

En núna langar mig að segja ykkur viðbrögðin mín við þunguninni LoL

Ég var búin að vera veik frá og með 1.Ágúst og þá héldu allir að ég væri ólétt og ég hélt það líka en nei nei alls ekki heldur var ég bara veik (með bólgu í maganum og með galla í maganum en ENGAR bakteríur)

Svo núna 5. september þá var ég að tala við Hörpu frænku vegna þess að ég var ósátt við Magneu (því miður) Crying og við töluðum um allt og uppköstin og allt bara. Smile Hún Harpa mín er svo yndisleg Heart

Svo allt í einu segir Harpa "ertu ekki bara ólétt"?? Þá segi ég sko algjörlega án þess að hugsa "NEI það er ég ekki ég er búin að taka helling af óléttuprófum" (í Ágúst sko tók ég nokkur)  Harpa og ég hlæjum saman í símanum og svo kveðjumst við frænkurnar og plönum að hittast (6.september)Smile

Svo næsta dag um morguninn þá fer ég MJÖG snemma á fætur og tek ipod'inn minn með inn á baðherbergið með alveg SVAKALEGA neikvæðu hugarfari Blush og geri svo mitt þarna inni og bíð svo eftir þungunarprófinu og eftir tvær mínútur þá sé ég TVÖ STRIK!!!!! W00t Mér brá svoooo en ég trúði þessu ekki og tók þess vegna annað próf og beið aftur BARA í tvær mínútur og þá sé ég svei mér þá TVÖ STRIK!!!!!LoL Ég fríkaði alveg hreint út!!!! Ég fór á msn og talaði strax við frænku mína hana Guðmundu á msn'inu og sagði henni allt Heart Svo vakti ég verðandi föðurinn upp úr 11-12 held ég og sagði við karlinn:,, heyrðu það kom neikvætt, ég er ekki ólétt" Cool og hann vissi sko að ég hefði ekki fengið blæðingarnar mínar og hann var svo hræddur um að ég hafði kannski misst tíðahringinn minn út af ælinu og hann var svo leiður í framan og sagði "æi, hvað er þá að, afhverju færðu ekki blæðingarnar þínar" ? Frown

Þá sagði ég "Ég er bara að djóka, ÉG ER ÓLÉTT" og ég hef bara ekki séð Guffa svona glaðann í framan nema þegar hann bað mín og ég sagði jáHeart og hann gaf mér RISA knús og kyssti mig alveg út í eitt HeartInLove Ég sagði við hann að mig hafði  langað til að ljúga að honum og á meðan hann hafði verið í vinnunni þá hefði ég pakkað þungunarprófinu inn á meðan og þá hefði hann fengið það í pakka en þetta var yndisleg aðferð líka Grin (að gabba hann).

 Næstu daga tók ég nokkur þungunarpróf...a.k.a 10 í viðbót heheh 2 hvern einasta dag SmileBlush og það var ekkert alveg BESTA lykt hérna heima sko(þar sem þungunarprófin voru geymd)..heheheheheh LoL  þannig að ég ákvað að fara að þvo þau og það skilaði smá árangri en lyktin var ennþá Blush
Þannig að ....tveimur dögum seinna þá ákvað ég að setja þungunarprófin í HEITT vatn Blush því að það eyðir blettum í fötum og tekur lyktir HEHEHEHEHEHEBlush og svo setti ég smá uppþvottalög ofan í (plastbollann sem þungunarprófin voru stöfluð í) og svo 2 mínútum seinna kíki ég og finn ekki lengur þessa vondu lykt og verð VOÐA kát SmileGrin en svo kíki ég á þungunarprófin og SVEI MÉR ÞÁ  flest þungunarprófin voru allt í einu losnuð við jákvæða strikið!!!!!! (Nema 5)
Þá fattaði ég að hiti og uppþvottalög þvo, það hafði semsagt komið fyrir jákvæðu þungunarprófin okkar....ég fór svo hjá mér BlushBlushBlushBlushBlushBlush Ég náði að taka 5 þungunarpróf upp úr THANK GOD!  

Jesús minn hvað ég skammaðist mín fyrir ÞETTA ljóskuatriði LoLBlush
Sem betur fer var Guffi minn búin að taka myndir af þungunarprófunum fyrir okkur (hjúin)

Hehehehehehehehehehehe þetta er ekkert nema heimska LoL

Jæja ég ætla láta þetta gott heita Smile

Hérna kemur mynd fyrir ykkur sem viljið sjá þungunarprófin Smile (áður en ég skemmdi þau)Blush

 img_7840_930390.jpg

 

 Kær kveðja,

Ragnhildur Pálsdóttir og litla kríliðHeart

Adiós y hasta luego,

Ragnhildur Pálsdóttir y el niñoHeart


Raggan litla....STÚDENT!!!!!

Sælir kæru bloggvinir mínir Smile

Í gær(21.maí) varð ég loksins stúdent með alveg hreint glæsibrag! Og alveg hreint með frábæra meðaleinkun Grin 8,9!!!!! 

Svo í gær var alveg hreint frábær veisla það var svoooo gaman! Vinir okkar komu (ég var svo ánægð með það) :D Anna Linda, Bjarki, Vignir, Jenni, Steini, Elín, Eyþór og Ebba...svo aðeins seinna trítlaði hún Laufey Bára inn...:) Það var alveg hreint æðislegur matur takk fyrir það elsku Ásgeir minnHeart og Sigga mín Heartog skreytingin var FRÁBÆR takk elsku Alla mín Heart og takk mamma mín og pabbi minn Grin Heart og síðan var haldið "slideshow" og kvæddar vísur um mig (Aðalheiður mín og Þóra Sigga) Smile Ég elskaði vísurnar og vill endilega deila þeim með ykkur :) Þetta var alveg hreint æðisleg veisla takk kærlega elsku mamma og pabbi Heart

Ragnhildur Pálsdóttir

stúdent 21. maí 2009 (með glæsilega meðaleinkun) hehehe

Stúdentsprófi auðvitað  er ástæða að fagna,
með ofurlitlu kvæði má gleðina svo magna.
Frænku minni, Ragnhildi, finnst mér rétt að lýsa
fer hún nokkuð hjá sér, þessi myndarskvísa?


Æskuár á Breiðdalsvík eins og örskot liðu,
og ævintýri í Grandaborg eftir henni biðu.
Enda bar hún með sér orku og yndisþokka,
allir þekktu stelpuna með þessa rauðu lokka.


Í viðtali við Hemma Gunn í sjónvarpinu sást hún
og sannarlega hvergi væntingum þar brást hún.
Aðspurð kvaðst hún forseti ekki vilja vera,
en að vinna í Hagkaup, þar er nóg að gera.


Fjölskyldan í Danmörku dvaldi svo um tíma
og daman fór við Spice-Girl taktana að glíma.
Hún lék í sjónvarpsþáttum sem sýndir voru heima,
um sollinn úti í Hollywood lét sig ekki dreyma.


Í Ármúlanum kennara hún aðstoðaði gjarna,
og efst í guðatölu var skólastjórinn þarna.
Menntabrautin farsæl mun fyrir henni liggja,
á fræðagrunni traustum hægt verður að byggja.


Tungumálahæfileika hefur hún svo ríka
hérna ensku, dönsku og þýsku mætti flíka.
Við innfædda á Mallorca innan skamms hún hjalar,
því auðvitað hún spænskuna reiprennandi talar.


Af kvikmyndum DVD hún dágóðan á forða
en að drífa hana í fjallgöngu, hæpið er að orða.
Hún gutlar nú í líkamsrækt en leiðist þessi iðja
og líklega um árskort í Hreysti mun ei biðja.


Í Laugarásnum býr hún með Guffa sínum góða
sem glaður henni í myndatökur reynir víst að bjóða.
Þær uppstillingar hafa þó afleiðingar ærnar,
einu sinni tókst honum að brjóta á henni tærnar.


Meðan hún í sandinum og sólinni sig baðar
seigur Guffi í Elko í hillurnar víst raðar.
Á Skæpinu og Feisbúkk faðmast þau og kyssa
og fjölskyldan og vinir af því tæpast missa.

 

Við spáum því að Ragnhildi lukkudísir leiði
og láti sólargeislana skína oft í heiði
Að ferli hennar björtum í framtíðinni gætum
og fúslega í brúðkaup og skírnarveislur mætum!!

(Aðalheiður besta frænka heims og Þóra Sigga)

Ég táraðist nú við þetta CryingSmile

og síðan bauð ég gestum mínum upp á kökur og góðgæti SmileWink

Ég labbaði síðan á milli borða (margra borða) þetta var alveg eins og ferming...Smile Það voru 50 manns og ég spjallaði svo  við fólkið mit/okkar og vini
Smile
og síðan ætlaði ég að fara að setjast niður vegna þreytu og þá sé ég hann bróðir minn litla gullið mitt bara sofandi. Smile InLovealgjört krútt HaloSmileog síðan fór ég að opna gjafirnar og englarnir mínir (systkini mín) fengu að opna með mér og lesa kortin upphátt þau voru svoooo spennt yfir því þá var Einar sko EKKERT þreyttur ég fékk voða fínar gjafir og er ég alveg yfir mig kát og hamingjusömGrin

takk kærlega fyrir mig elsku familían mín Heart þetta var skemmtilegasta veisla sem ég hef nokkurn tímann verið í og haft milljón þakkir mamma og pabbi  HeartInLoveSmileGrinKissing

 með kærri kveðju,

Ragnhildur Smile

ragga_39.jpg

P.S. 

Síðan skrifa ég svo seinna um skemmtilegu stúdentsveisluna í Hafnarfirðinum WinkSmile

 

Alla frænka HeartInLove og Þóra Sigga frænka Smile

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Stólar....

Núna er ég búin að fá stúdentsgjöfina mína frá Guffanum mínumHeart og frá ömmu Ragnhildi :)

Guffi minn gaf mér fartölvu GaspGrin og núna sitjum við hjúin í sófanum og ég er að nota tölvuna MÍNA!!!!

og það fer svo vel um okkur að mig langar að "stela" ljóðinu hans Þórarins míns Eldjárns Wink sem ber nafnið "Stólar"....

 

Stólar um stóla frá stólum til stóla

í stofunni heima á fundi í skóla.

Mættum við ekki af þeim þjónustu þiggja

þyrftum við ýmist að standa eða liggja.

 

Stólar úr plasti stólar úr leðri 

stólar í görðum í misjöfnu veðri.

Stólar í lagi, stólar með bætur

stólar með einn tvo þrjá fjóra fimm fætur.

 

Stólar sem rugga stólar sem braka

stólar á hjólum til þess að aka.

Stólar svo hraustir, stólar svo slappir 

stólar með rókókókókflöskulappir.

 

Vandaðir stólar, stólar úr gulli 

stólar með allskonar blettum og sulli.

Örlitlir stólar og stólar sem passa

fyrir stóra og breiða og níþunga rassa.

 

(Þórarinn Eldjárn) 1992

 

Adiós y hasta luegoHappy=bless og sjáumst seinna Smile

 

 

 

 

 


Spanish Colours?

Jæja lang síðan síðast :) en núna verð ég bara að segja ykkur frá þegar ég og Alla fórum í Debenhams, og ég hafði mig af fifli ;)

Afgreiðslukerlingin: Can I help you?
Ragnhildur(Ég) : Yes, I am looking for spanish colours.

Afgreiðslukerlingin:What do you mean spanish colours?
Ragnhildur (Ég: I am looking for make-up and the theme is:Spain :P

Afgreiðslukerlingin:What do you mean, aren't all colours spanish?

Ragnhildur (Ég): No you know spanish colours are like: brown, pink, yellow, green and blue.

Afgreiðslukerlingin: Aren't those just colours?
Ragnhildur (Ég): No, they are spanish colours

Ragnhildur (Ég): You know icelandic colours are like:red,blue....

Afgreiðslukerlingin:Like the flag? (kaldhæðnislega)
Ragnhildur (Ég) No, not like the flag.

Ragnhildur (Ég): No just icelandic colours.

Ragnhildur (Ég): So do you have any spanish colours? 

 


Síðasta önnin mín :) BESTU KENNARAR EVER!

ÉG VEIT að það er langt síðan ég bloggaði en ég bara lenti í ýmsu og vildi ekki vera að segja það hérna á blogginu....ég vildi ekki vera pain!

 Allavega árið 2008 var voðalega skemmtilegt fyrir utan að ég greindist með æxli í vinstra brjóstinu....og seinna kom í ljós að það hafi verið 8 og hálfur sentimetri....einum of...miðað við mína brjóstastærð ég barasta skil ekki hvernig ég gat ekki fattað þetta heldur var ég frekar oft eins og lítill krakki að klípa í "kúluna" hehehe. 

Ég var í 29 einingum og náði þeim ÖLLUM með hæðstu einkurnar ég fékk 10 í spænskunni og 9 í hinum yndislegu fögunum. Wink

En jámm núna þessa dagana er VOÐA lítið að gera hjá mér...ég er bara í STÆ 202 og ENS 703 og LOK 113  semsagt 8 einingum á lokaönninni minni :P BARA ÆÐI!!!!!!

En það albesta við þetta er að ég er með BESTU kennarana á lokaönninni minni sem eru Hafliði Vilhelmsson og Halldór Leifsson Smile Hafliði kenndi mér fyrir 1 og hálfu ári ensku 403 og við náðum svo vel saman hann er svo mikið yndi  Halo og held ég SVO mikið upp á hann Blush  og ég og Halldór byrjuðum ekki vel en svo kynntumst við almennilega núna í haust og ég alveg hreint dýrkaði hann, hann kennir svo vel og hefur skemmtilegann húmor Smile

Þannig að lífið gæti ekki verið betra svei mér þá að útskrifast með tvo uppáhaldskennara...og mér veitir ekki af því eftir eineltið í fyrra....Smile þetta allavega gerir hlutina MUN BETRI Happy

Ég var svo kvíðin núna síðastliðinn miðvikudag þegar ég fór í ensku 703 því að þetta er bara ritunaráfangi og maður getur fengið alveg upp í kok á því að skrifa stundum.....en þá hressaðist ég við þegar Hafliði segir:,, has anyone ever kept a diary or is keeping a diary right now"? Ég var sú eina sem rétti upp hendina smá vandræðalegt Blush og hann sagði að það væri alveg hreint frábært því að þetta sé þannig áfangi semsagt ekki bara ritunaráfangi heldur skrifa allt um sjálfan sig Wink

Því er ég nú þjálfuð í  Smile Ég vona bara að fólkið í skólanum láti mig vera í guðana bænum....

adiós Heart

með kærri kveðju,

Ragnhildur Pálsdóttir Kissing

 

 

116_-_ragga_kjuti_771103.jpg

 


Næsta síða »

Um bloggið

Ragnhildur Pálsdóttir

Höfundur

Ragnhildur Pálsdóttir
Ragnhildur Pálsdóttir
Ég er ung dama sem er fædd 1987...sem hef lúmskt gaman af því að blogga...langt síðan ég gerði það síðast hef gaman af að blogga um lífið og tilveruna...og allskonar hluti sem ég hef lent í ;)
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • raggan
  • ...a_og_hundur
  • ...marta_4
  • ...marta_3
  • ...einar_4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband