21.7.2008 | 22:38
Mamma mia! y mi madre y yo :o)
Þetta var æðislegt kvöld!!!
Við Mamma og Marta fórum á "Mamma mia" það er æðisleg mynd
Allt í einu heyri ég í mömmu vera að syngja " I work all night, I work all day to pay the bills I have to pay but still there never seems to be a single penny left for me... (mamma syngur voðalega lágt en blítt og vel ) þegar ég var lítil elskaði ég þegar hún söng fyrir mig "Þytur í laufi" og "Komdu inn í Kofa minn" það var svo gaman að heyra í henni syngja og ég söng með henni og stelpan við hliðina á mér hló og brosti voðalega nicely til mín (þegar hléið var) því að við mæðgurnar sungum allan tímann á meðan kvikmyndin var. Það var svo gaman að syngja með mömmu mér leið eins og ég væri ung aftur en ég skammaðist mín fyrir að það heyrðist alltaf þvílíkt í okkur. Og Mörtu fannst við vera svo cool og hún sagði svona við mig:,,Ragnhildur, ég kann bara ekki öll lögin en ég vill sko syngja með .
Það var fyndnast þegar mamma söng "Dancing Queen" og "Mamma mia" og "Gimme Gimme Gimme" því að þá sungum við dætur hennar með
"I was cheated by you and I think you know when? So I made up my mind it must come to an end. Look at me now will I ever look I don't know how, but I suddenly lose control there is a fire within my soul, just one look and I can hear a bell ring, one more look and I forget everything."
Þetta var þvílíkt stuð og mamma hló svo mikið og hún hlær smitandi....og Marta hló líka aðalega að mér og mömmu
Ég var bara að koma núna inn og byrjaði að blogga um þessa æðislegu mynd
Ég mæli þvílíkt með henni fyrir ykkur sem lesa bloggið mitt nema Vigni (it's kind of girly)
Svo kom Marta með sitt sæta komment "má ég gista núna" en það hentar illa núna en á morgun gistir prinsessan
Jæja ég vildi endilega segja ykkur frá þessu kvöldi.......
adiós y hasta luego=bless og sjáumst síðar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
9.7.2008 | 22:04
Það besta sem hefur komið fyrir mig :o)
Nú er loks komið að því ég bloggi aftur en núna eru aldeilis nýjar fréttir...
Þið vitið það sjálfsagt flest en við Guffi erum trúlofuð
Mig langar svolítið að segja ykkur frá þessari upplifun
Ég lét símann minn vekja mig klukkan 10:01, því ég fæddist á þeim tíma (ég er svo sérvitur)
Það var sungið fyrir mig afmælissönginn í símann . Því næst fórum við á nesið í heimsókn og stoppuðum þar í smástund áður en við fórum út að borða. Við fórum á Ruby Tuesday og ég tilkynnti að ég ætti afmæli því maður fær frían afmælisís á Ruby Tuesday en ég gaf Guffa mínum hann .Eins og þið sjáið hér....yndið mitt
Eftir að hafa fengið okkur "a juicy Burger" héldum við heim á leið.
Síðan þegar við komum á Laugarásveginn vorum við voðalega hissa því að það var fullt af bílum ALLS STAÐAR! Vegna þess að það voru tónleikar í Laugardalnum Björk og Sigur Rós það mættu u.þ.b. 30.000 manns.
Síðan komum við loksins heim og Guffi fór aðeins fram og síðan kemur hann tilbaka og segir voðalega fallega hluti, og síðan fer hann niður á hnéð og spyr:,,viltu giftast mér"? Ég sagði: já, að sjálfsögðu". og ég fór að hágráta alveg í ca. klukkutíma allavega 40 mín. Ég grét svo mikið, þetta voru þvílík hamingjutár . Jesús minn eini sanni ég varð svo yfir mig hamingjusöm. Ég hef lengi LENGI ætlað að blogga um þetta, en ég fer alltaf að tárast úr gleði.....
Við erum núna á Stokkseyri og ég var að fá lánað tölvuna hjá yndislega máginum mínum og núna eru hann og Hörður að rökræða hver á að fara í tölvuna.
P.S.
Hérna eru hringarnar okkar beggja þið hafið kannski séð þá á síðunni hans Guffa
Og að lokum, hérna er hringurinn minn
Bless,
Ragga
Bloggar | Breytt 5.2.2010 kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.6.2008 | 14:55
Ást, hamingja og væntumþykja
Í þessari bloggfærslu ætla ég að skrifa um uppáhaldsfólkið mitt fólkið mitt er æðislegt
Öll mín (bráðum) 21 ár hef ég aldrei verið jafn hamingjusöm og á ég það allt einni manneskju að þakka sem ég held að þið öll vitið hver er.Hann Guðfinnur minn, hann gjörbreytti lífinu mínu gjörsamlega ég veit ekki einu sinni hvernig....bara með því að vera til. . Ég á eflaust bestu tengdaforeldra í heiminum. Og bestu móður í heimi hér sem heitir Magnea Gylfadóttir og besta föður í heimi hér sem heitir Hörður Einarsson
Guðríður mín hvað er hægt að segja um hana???? Hún er hreinskilin, yndisleg, gullfalleg, frábær og fullkomin móðir og besta mágkona sem hægt er að eiga og æðisleg vinkona. Hún er svo hlý og einlæg og sæt. Ég elska þig Guðríður mín þú ert æðisleg.
Guðfinnur Flóki....hann var nú bara smá skott þegar ég sá hann fyrst u.þ.b. 2 mánaða gamlan. Ég féll strax fyrir krúttinu mínu honum Flóka og hef haft alveg ROSALEGA gaman af því að fylgjast með honum stækka. Hann er jafn sætur og hann er handóður, algjör ærslubelgur sem ég dýrka alveg út í eitt. Þessi mynd var tekin á skírnardeginum hans. Ég elska Guðfinn Flóka svo mikið og litla yndið hann bróðir hans.
Hörður Frans ég man nú þegar ég kynntist honum fyrst guð hvað það var sætt. Það var þannig að ég var í mat á Stokkseyrinni og Hörður var látinn sitja við hliðina á mér. Okkur samdi svo vel saman að daginn eftir þegar það kom að kvöldmat spurði Hörður hvort að það væru ekki örugglega sömu sæti og síðast mér fannst það svo sætt og þessi mynd hérna er tekin í Tyrklandi þegar ég var nýbúin að taka mér lúr, hann kom að kúra hjá mér..Hörður Frans er algjört yndi, dugnaðarforkur, snillingur, gullfallegur karatekarl, og svo sætur og duglegur að hjálpa mömmu sinni með litlabróður sinn.
Snorri minn er algjört yndi sem ég held alveg rosalega upp á hann er rosalega klár og duglegur í skólanum og mjög skemmtilegur og fyndinn það er alltaf svaka fjör að fá hann hingað til okkar ég vildi óska þess að það gerðist aðeins oftar hann er lítill krúttlegur fjörkálfur sem ég elska.
Einar Gylfi minn hann er litli stúfurinn minn, hann var systkini númer 2. Hann fæddist í Danmörku og ég lít alltaf á Einar sem danan minn. Hann talaði fullkomlega dönsku þegar hann var lítill en í dag er það önnur saga, hann kann ekkert í dönskunni lengur því miður, hann var með danskan hreim en hann hvarf mjög fljótlega eftir að við fluttum til Íslands. Hann er svo kurteis og þægur og algjör gullmoli. Hann mætti vera skárri við Mörtu Maríuna mína.....hann er svolítið stríðinn eins og eldri bræður vilja stundum vera. Ég elska Einar minn svo mikið
Marta María mín "hin sísvanga" quota Guffa. Hún var systkini númer 4. Hún er sko rosalega yndislegt barn, afskaplega einstök, bráðfyndin, einlæg, við erum samt frekar óvenjulega nánar því að ég tók óeðlilega mikinn þátt í uppeldinu hennar ég og mamma við ólum hana eiginlega upp pabbi hennar var alltaf úti og er enþá í dag. Þegar hún var pínu lítil þá þekkti hún varla pabba sinn og ekki fannst honum það gaman....ég skil það vel...en jámm ég kenndi Mörtu að borða sjálf og að tala t.d. "mamma" "daddildur" og ég kenndi henni að segja "lov jú" þegar hún var 17 mánaða gömul það var algjör snilld. Ég gleymi aldrei þegar Marta sagði við mig þegar hún var 2 og hálfs árs "ég á tvær mömmur" þá varð ég svo hissa og sagði ha? Hver er líka mamma þín? Þá sagði hún "þú" en ég sagði henni bara að ég væri STÓRA STÓRA systir hennar og hún sagðist samt líta á mig sem mömmu sína. Hún er svo mikið yndi.
Hérna eru svo myndir af mér og Guffaluff. Það tengist fyrirsögninni Ást, hamingja og væntumþykja.
Ég og Guffi minn Ég elska hann svo mikið, ég elska hann meira en allt.
Ég og Guffaluff yndið mitt. Á miklubrautinni í myndatöku
Guffi og ég saman á Tyrklandi.
Og síðan uppáhaldsmyndin mín Lots and lots of love.... Hann eins og ég segi hefur gjörbreytt lífinu mínu í endalausa hamingju.
Uppáhaldsmyndin mín af okkur hjúunum...
Bílar og akstur | Breytt 5.2.2010 kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Um bloggið
Ragnhildur Pálsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar